Skilmálar

Afhending vöru

Afhendingatími vöru eru 1-7 virkir dagar. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar.

Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Hönnun.art til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með vsk. Greitt er fyrir vöru á vefnum og er varan svo send viðtakanda í pósti og greiðir móttakandi fyrir sendinguna.

Pöntunarstaðfersting

Þegar þú hefur lokið pöntun á vefsvæði Hönnun.art sendum við staðfestingu á netfangið þitt. Í staðfestingunni kemur fram hvaða vara var keypt, afhendingarstaður, greiðslumáti og verð.

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneigninarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup. Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjanes.

Shopping Cart
Scroll to Top